Curio App
Curio Kiosk
Curio Kiosk er sniðin fyrir vinnustaði þar sem margir starfsmenn stimpla sig inn og út á sama stað. Með Curio Kiosk geta starfsmenn notað sömu spjaldtölvuna til inn- og útstimplunar með sínu persónulega aðgangsorði. Þeir geta einnig stimplað sig á milli verkefna og skoðað tímaskýrslur sínar og lagfært ef það á við. Kerfið styður býður upp á myndavélarskráningu starfsmanna til að tryggja viðveru. sjá meira hér
Curio Kiosk er fáanlegt fyrir bæði iOS og Android snjalltæki.
Curio Schedules
Vaktaplan Curio Time gerir þér kleift að skipuleggja bæði vaktir og verkefni fyrirfram með einföldum hætti. Starfsmenn geta á einum stað séð verkefni sín og vaktir, fylgst með vinnustundum yfir viku og mánuð, og þannig haft góða yfirsýn yfir vinnudaginn.
Verk og vaktir eru tilvalin lausn fyrir þá sem vilja skipuleggja verkefni sín fram í tímann, hvort sem um er að ræða veitingahús, hótel, byggingaverktaka eða aðra aðila með dreifða starfsemi. sjá meira hér
Curio Schedules er fáanlegt fyrir bæði iOS og Android farsíma.
Veggfestingar
Stafræn stimpilklukka
Passar fyrir öll bókhaldskerfi
Þú getur sótt tímaskýrslur starfsmanna hvenær sem er. Kerfið býr til bæði pdf, csv og excel skýrslur sem hægt er að vinna með áfram. Hægt er að innsetja tímaskýrslur beint inn í DK bókhald. Hægt að sækja starfsmenn, verkefni og verkþætti frá bæði Payday, H3 laun, Uniconta og DK bókhaldi. Auðveld yfirfærsla með API.
GPS staðsetning
Veikindadagar, orlof o.fl.
Tímaskráningarkerfið heldur utan um veikindadaga +barna ásamt því að telja orlofsdaga skv. ráðningarsaming. Starfsmaður getur skoðað og sent sjálfum sér tímaskýrslur í síma sínum eða í Curio Kiosk og þá með upplýsingum um orlof sitt.
Orlofssíða
“Viska á morgnana, jákvæðni allan daginn”
Val um viskuorð eða brandara við innstimplun:) Jákvæðir pabbabrandarar :) Deildu á samfélagsmiðlum eða SMS :)
App fyrir starfsmenn
- Skráir viðveru skv. kjarasamningum
- Hægt að stimpla sig á milli verkefna
- Skráir GPS punkt við inn og útstimplun
- Skráir staðssetningu
- Aðgangur starfsmanna að tímaskýrslu sinni
- Starfsmenn geta breytt skýrslu sinni í appinu
- Starfsmenn geta sótt um orlof í appi
- Starfsmenn geta sent sjálfum sér tímaskýrslu sem pdf.
- Starfsmenn geta séð persónuleg verkefni
- Starfsmenn geta tekið mynd og vistað inn í verkefni í Curio Time
VERKEFNASTJÓRI
Notendur geta valið verkefni eða skrifað sérsniðna verklýsingu við hverja innstimplun, jafnvel mörgum sinnum yfir daginn, til að tryggja nákvæma skráningu á verkefnum. Curio Time er tímastjórnunarkerfi sem einnig sér um tímaskráningu verkefna. Kerfið getur sótt verkefni og verkþætti úr öðrum kerfum í gegnum API tengingar, svo sem DK, Uniconta og Business Central. Skýrslugerð er einföld með fjölbreyttum möguleikum á að flokka og sía verkefni, sem auðveldar utanumhald og stjórnun.
Reiknireglur
Ef þú ert með starfsmenn sem td. mæta á mismunandi tímum eða vinna skv. vaktplani þá getur þú búið til reiknireglu að eigin vali og sett á starfsmann. Hægt er að stofna ótakmarkað magn af reiknireglum. Allar reiknireglur eru hannaðar skv. kjarasamningum stéttarfélaga.
Samantekt
Lagfæringar tímakorts
GPS kort
Þitt eigið útlit
Þjónusta og backup
Ný nálgun í tímastjórnun
Curio Time er framúrskarandi tímastjórnunarkerfi sem var þróað með notendavænt viðmót og sveigjanleika í huga, sérstaklega fyrir starfsmenn. Flest tímaskráningarkerfi á markaðnum eru hönnuð með bókhald og stjórnendur í huga, en Curio Time leggur sérstaka áherslu á að bæta upplifun og vinnuflæði starfsmanna sjálfra. Hér eru nokkrir lykilþættir sem gera Curio Time að einstöku kerfi:
-
Heildstæð nálgun: Curio Time sameinar almenna viðveru, tímastjórnun verkefna, og vaktakerfi í einu kerfi. Þetta eykur skilvirkni og einfaldar stjórnun fyrir fyrirtæki sem geta haldið utan um alla viðveru, vaktir og verkefni starfsmanna á einum stað.
-
Boost hnappur: Nýjung sem gerir stjórnendum kleift að hámarka skráningu starfsmanna á útseldum tíma. Með því að virkja Boost takkann í kerfinu, aðstoðar appið starfsmenn við að skrá dagleg verkefni sín strax á staðnum. Þetta dregur úr hættu á mistökum og eykur nákvæmni í reikningagerð, sem leiðir til betri nýtingar á vinnustundum og aukinnar framlegðar fyrir fyrirtækið.
-
API tengingar: Curio Time er sveigjanlegt og tengist auðveldlega öðrum kerfum eins og DK, Uniconta, Business Central, H3 laun og Payday. Þetta tryggir að kerfið samlagist vel við núverandi upplýsingakerfi fyrirtækja og gerir gögnin aðgengileg.
-
Skýrslugerð: Kerfið býður upp á öfluga skýrslugerð með fjölbreyttum möguleikum á flokkun og síun verkefna. Þetta auðveldar stjórnendum að fá nákvæmar upplýsingar um vinnu starfsmanna og yfirlit yfir verkefni og tíma.
-
Myndavélar og GPS virkni: Innbyggð myndavél gerir starfsmönnum kleift að taka myndir af verkefnum beint í appinu og vista þær í tímaskýrslu. GPS staðsetningarkerfi sannreynir hvar starfsmenn voru þegar þeir stimpluðu sig inn eða út, sem tryggir nákvæma tímaskráningu.
-
Sjálfvirkar reiknireglur: Með innbyggðum reiknireglum samkvæmt kjarasamningum er auðvelt að beita réttum reglum á laun starfsmanna. Þetta dregur úr mistökum og sparar tíma. Við höfum lagt mikinn metnað í að gera reiknireglur aðgengilegar og komum með tillögur af uppsetningu þeirra.
-
Auðvelt að læra og innleiða: Curio Time er ekki bara notendavænt fyrir starfsmenn heldur einnig fyrir stjórnendur. Góðar leiðbeiningar á netinu auðvelda þeim að læra á kerfið, og innleiðing er ókeypis. Yfirleitt tekur það um 1-2 klukkustundir að ná tökum á öllu kerfinu.
Curio Time er því einstaklega hentugt fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda og bæta viðveru- og verkefnastjórnun sína á notendavænan hátt, bæði fyrir starfsmenn og stjórnendur.
Notaðu Boost hnappinn til að bæta verkefnaskráningu starfsmanna
Til að leysa þetta vandamál þá hönnuðum við Boost hnappinn í Curio Time. Með því að virkja Boost takkann hjá þeim starfsmönnum er hægt að bæta skilvirkni tímaskráningar verulega. (100%)
Glæsilegt viðmótEinfalt í notkunVistar mynd inn í verkefniFrábært utanumhaldGps merking í tímaskýrsluHægt að lagfæra skýrslu"Quotes" vísdómsorð
Myndavél Curio App tengd verkefnum
Eyddu allri óvissu!
Við kynnum snjallforritið Curio KIOSK fyrir spjaldtölvur
Curio Kiosk er snjallforrit hannað fyrir spjaldtölvur sem gerir mörgum starfsmönnum kleift að stimpla sig inn og út með aðgangsorði sínu á sömu tölvunni. Forritið býður upp á fjölbreyttar stillingar, þar á meðal möguleikann á að taka mynd af starfsmanni við inn- og útstimplun til að staðfesta viðveru. Myndavélin er valkvæm og aðeins einn af mörgum möguleikum sem Curio Time kerfið býður upp á.
Að auki er Curio Kiosk tengt við ýmis önnur kerfi, þar á meðal DK, Payday, Uniconta og H3 laun, sem tryggir sveigjanleika og auðveldan aðgang að upplýsingum fyrir bæði starfsmenn og stjórnendur. Þetta gerir Curio Kiosk að öflugri lausn fyrir fyrirtæki sem vilja tryggja nákvæma tímaskráningu og betri yfirsýn yfir vinnustaðinn.
- Starfsmenn geta sent inn beiðni um orlof frá KIOSK og sent inn í Curio Time og fengið staðfestingu sent inn í Curio Kiosk.
- Appið er GPS tengt og fer staðsetning inn í Curio Time við innstimplun og útstimplun ef það er virkt í Curio Time.
- Möguleiki á að virkja upp IP tölu þannig að talvan virki aðeins á ákveðnum stað.
- Starfsmenn skrá aðgangsorð sitt þegar þeir stimpla sig inn eða út frá vinnu.
- Starfsmenn geta stimplað sig með aðgangsorði á milli verkefna án þess að stimpla sig út úr vinnu.
- Hægt að skrifa og senda skilaboð til launafulltrúa.
1. Leyfi til að skoða tímaskýrslu og breyta tímum sínum og vista inn í Curio Time ásamt því að geta látið senda sér tímaskýrslu á netfang sitt.
2. Leyfi til að skoða innstimplun sína en ekki leyfi til að breyta henni og senda pdf tímasskýrslu á netfang sitt:
Curio Schedules - Vaktakerfi og verkefnastjórnun í einu forriti
Curio Schedules er fjölhæft kerfi sem sameinar vaktastjórnun og verkefnastjórnun í einu notendavænu forriti. Hvort sem þú þarft að skipuleggja vaktir fyrir starfsfólk eða tímasetja verkefni fram í tímann, þá veitir Curio Schedules þér fullkomna yfirsýn og stjórn á skipulagi þínu.
Forritið er aðgengilegt á Google Play Store og Apple App Store og veitir starfsfólki og verktökum aðgang að sínum verkefnum og vaktaplönum í rauntíma. Með því að nota Curio Schedules geta stjórnendur auðveldlega tímasett verkefni fram í tímann og tryggt að starfsmenn hafi skýra yfirsýn yfir komandi verkefni í dagatali.
Starfsmenn geta nýtt sér forritið til að skoða sína vaktaplön, tímasett verkefni og gert nauðsynlegar breytingar með einföldum hætti. Hvort sem um er að ræða verktaka eða starfsfólk á vöktum, þá auðveldar Curio Schedules samskipti, skipulag og skráningu á vinnu.
Verkefna og vaktakerfi
Einfalt að setja upp vaktaplanStarfsmenn sjá verkefni og vaktir í appiAuglýstu lausar vaktirStarfsmenn sækja um vaktirEinfalt að læra á vaktakerfiðSjálfvirkar tilkynningar o.fl.
Starfsmenn hafa vaktakerfi í appi
Eða vaktakerfi + tímastjórnunarkerfi í appi
*(ALL IN ONE)